Bláa Lónið er heilsu- og lækningarlind í fallegri náttúru Reykjaness.
Með heimsókn í Bláa Lónið ná gestir að lífga upp á samband sitt við náttúruna, drekka í sig útsýnið og njóta þess að baða sig í hreinu, fersku loftinu á meðan þeir slaka á í heitum jarðsjónum.
Það er ekki að undra að lesendur “Conde Nast Traveller” tímaritsins hafi kosið Bláa Lónið sem bestu heilsulindina á heimsvísu. Síðastliðin tíu ár hefur Bláa Lónið hlotið umhverfisviðurkenninguna Bláfánann sem er veittur fyrirtækjum sem stuðla að verndun umhverfis á náttúrulegum ströndum og höfnum.
Hitastig vatnsins er 37-39°c. Lónið hefur að geyma 9 milljón lítra af jarðsjó, sem endurnýjar sig á 40 stunda fresti. Reglulegar prófanir sýna að algengar bakteríur þrífast ekki í þessu vistkerfi, þannig ekki ekki er þörf á viðbættum hreinsunarefnum svo sem klór.
Lækningalind Bláa Lónsins veitir náttúrulega meðferð við húðsjúkdómnum psoriasis. Lækningalindin er starfrækt í samvinnu við íslensk heilbrigðisyfirvöld. Lækningalindin er staðsett á miðri hraunbreiðu á Reykjanesinu þar sem kraftmikið náttúrulegt umhverfi hefur endurnærandi áhrif á líkama og hug. Böðun í Blue Lagoon jarðsjó sem þekktur er fyrir lækningamátt og einstök virk efni: steinefni, kísil og þörunga.
35 nýtískulega hönnuð, björt og rúmgóð tveggja manna gistihergi eru í boði fyrir gesti lækningalindarinnar. Rúmgóður veitingasalur er í lækningalind ásamt setustofu með sjónvarpi þar sem gestir geta slakað á og notið samverunnar. Gestir hafa einnig aðgang að matstofu, afþreyingaherbergi, vel búnum tækjasal, þar sem stunda má líkamsrækt, og skjólgóðum garði til útiveru og hvíldar.