Þar eru fjölmargar frábærar göngu-, hlaupa- og hjólaleiðir. Þá eru reiðstígar og stígar fyrir vélhjól einnig á svæðinu.
Grindavík er steinsnar frá stórhöfuðborgarsvæðinu og leiðin þangað greið, hvort sem fólk velur að koma Reykjanesbrautina, vestur frá Reykjanesi eða hinn margrómaða Suðurstrandaveg. Heimsókn til Grindavíkur er tilvalinn sunnudagsrúntur. Renndu við!